Útfararstjóri sér um að flytja þann látna af dánarstað í líkhús.
Aðstandendur eða útfararstjóri hafa samband við prest/athafnarstjóra.
Útfararstjóra gefið upp fullt nafn, lögheimili, kennitölu, dánardag og dánarstað þess látna, nafn nánasta aðstandanda, heimilisfang, kennitölu og síma.
Flutningur á kistu út á land eða utan af landi.
Flutningur á kistu til landsins eða frá landinu.
Athuga hvort einhverjar óskir liggi fyrir frá þeim látna.
Ákveða kistu og líkklæði.
Ákveða hvort/hvernig snyrta á þann látna.
Ákveða hvort kistulagningarbæn skuli fara fram.
Ákveða tímasetningu og stað fyrir kistulagningarbæn.
Ákveða hvort tónlist skuli vera við kistulagningarbæn.
Dánarvottorð fengið og andlát tilkynnt til sýslumanns.
Auglýsa andlát í fjölmiðlum.
Ákveða tímasetningu og stað fyrir útför.
Auglýsa útför í fjölmiðlum.
Ákveða með legstað.
Ákveða organista, kór, einleik, einsöngvara, eða annað listafólk.
Ákveða tónlist við útför.
Upplýsingar fyrir prest/athafnarstjóra vegna minningarorða.
Ákveða skreytingar eða fána.
Blóm á altari.
Blóm og kransar frá aðstandendum.
Blóm og kransar afþakkaðir.
Ákveða hve margir bera kistu við athöfn og í kirkjugarði.
Ákveða hvort bera eigi blóm og kransa við athöfn og í kirkjugarði.
Ákveða hvort gera eigi sálmaskrá.
Ákveða erfidrykkju og gestabók.
Athuga með trékross og skilti á leiði.
Athuga með legstein og áletrun.
Athuga með þakkarkort/auglýsingu.
Athuga útfararstyrk frá stéttarfélagi eða félagsþjónustu.
Ef bálför er valin þá þarf að fylla út eyðublað hjá útfararstjóra.
Ákveða með greftrun á duftkeri.
Prestur/athafnarstjóri viðstaddur greftrun á duftkeri.