Gátlisti
Það sem aðstandendur þurfa að hafa í huga:
- Hafa samband við útfararstjóra.
- Útfararstjóri sér um að flytja þann látna af dánarstað í líkhús.
- Aðstandendur eða útfararstjóri hafa samband við prest.
- Útfararstjóra gefið upp fullt nafn, lögheimili, kennitölu, dánardag og dánarstað þess látna, nafn nánasta aðstandanda, heimilisfang, kennitölu og síma.
- Flutningur á kistu út á land eða utan af landi.
- Flutningur á kistu til landsins eða frá landinu.
- Athuga hvort einhverjar óskir liggi fyrir frá þeim látna.
- Ákveða kistu og líkklæði.
- Ákveða hvernig snyrta á þann látna.
- Ákveða hvort kistulagningarbæn skuli fara fram.
- Ákveða tímasetningu og stað fyrir kistulagningarbæn.
- Ákveða hvort tónlist skuli vera við kistulagningarbæn.
- Dánarvottorð fengið og andlát tilkynnt til sýslumanns.
- Auglýsa andlát í fjölmiðlum.
- Ákveða tímasetningu og stað fyrir útför.
- Auglýsa útför í fjölmiðlum.
- Ákveða með legstað.
- Ákveða organista, kór, einleik, einsöngvara, eða annað listafólk.
- Ákveða tónlist við útför.
- Upplýsingar fyrir prest vegna minningarorða.
- Ákveða skreytingar eða fána.
- Blóm á altari.
- Blóm og kransar frá aðstandendum.
- Blóm og kransar afþakkaðir.
- Ákveða hve margir bera kistu við athöfn og í kirkjugarði.
- Ákveða hvort bera eigi blóm og kransa við athöfn og í kirkjugarði.
- Ákveða hvort gera eigi sálmaskrá.
- Ákveða erfidrykkju og gestabók.
- Athuga með trékross og skilti á leiði.
- Athuga með legstein og áletrun.
- Athuga með þakkarkort/auglýsingu.
- Athuga útfararstyrk frá stéttarfélagi eða félagsþjónustu.
- Ef bálför er valin þá þarf að fylla út eyðublað hjá útfararstjóra.
- Ákveða með greftrun á duftkeri.
- Prestur viðstaddur greftrun á duftkeri.
Prenta síðu